Þau voru til í það og byrjuðu strax að skipuleggja sig. Það kom mér á óvart að þau vildu hvort um sig fá að gera sína síðu. Svo þegar eitt þeirra fann eitthvað sniðugt þá vildu hin fá að bæta svipuðu inn á sína. Þau höfðu greinilega mjög gaman af þessari vinnu og árangurinn var líka eftir því. Hér má sjá kveðjuna á heimasíðu leikskólans og hér er mynd af okkur að vinna.
30. mars 2015
Páskakveðja með PowToon
Þau voru til í það og byrjuðu strax að skipuleggja sig. Það kom mér á óvart að þau vildu hvort um sig fá að gera sína síðu. Svo þegar eitt þeirra fann eitthvað sniðugt þá vildu hin fá að bæta svipuðu inn á sína. Þau höfðu greinilega mjög gaman af þessari vinnu og árangurinn var líka eftir því. Hér má sjá kveðjuna á heimasíðu leikskólans og hér er mynd af okkur að vinna.
28. mars 2015
Smá örvænting
Starfs míns vegna koma tímabil þar sem ég er afar upptekin og langir vinnudagar, þess vegna verð ég eiginlega að draga bara djúpt andann og hugsa jákvætt. Ég reyni að gera eins vel og mikið og ég get með góðu móti komist yfir.
Það er nú sem betur fer heppilegt að sumt af því sem verið er að kynna núna hef ég prófað áður, en annað ætla ég að reyna eftir bestu getu að finna tíma til að nýta. Ég er ætíð hrifin af þeim áskorunum sem ég fæ í kennslu, það að finna út úr hvernig hægt er að nota smáforrit og kennsluvefi með ungum börnum finnst mér alveg svakalega spennandi og skemmtilegt. Ég á mér reyndar langa sögu í þessu fikti. Ég var svo heppin að komast í eTwinning verkefni fyrir nokkrum árum og kynntist þar leikskólakennurum sem eru jafn mikið að fikta í uppýsingatækni og ég. Í þessu verkefni t.d. 1.2. Buckle My Shoes sem var stærðfræðiverkefni gerðum við tilraunir með hina og þessa vefi. Þetta var fyrir tíma iPads og gaman að prófa hvað við komumst upp með að nýta mörg vefforrit með svo ungum börnum.
Ég var og er með annað vefsvæði til þess að fylgjast með ýmsum vefsíðum, en Pintarest er að mínu mati þægilegast til þess að geyma góðar hugmyndir.
Það sem er svo þægilegt við þetta svæði er að allir geta „pinnað“ frá öllum. Þannig getur maður elt uppi fólk sem hvefur svipaðan áhuga og séð hvað þeir eru að pinna. Ég fæ upplýsingar um það hvað fólk sem t.d. hefur áhuga á handavinnu eða iPad í kennslu finnur og get þá skoðað jafnóðum hvort það er eitthvað sem gæti gagnast mér og þá pinnað á mína síðu.
Það eru sem betur fer alltaf fleiri og fleiri vefsvæði sem eru að uppgötva markaðsgildi Pintarest og bjóða upp á beina tengingu líkt og gert er við fésbókina og twitter.
Málþing Hafnarfjarðar um læsi
Mitt hlutverk í málstofu var að flytja erindi um heppileg smáforrit til þess að efla læsi í leik- og grunnskólum. Þar sem mér fannst ég ekki geta fjallað um efnið án þess að benda á mikilvægi þess að líta beri á spjaldtölvur sem verkfæri til þess að nálgast ákveðin markmið í kennslu byrjaði ég erindið á því að fjalla um það og benda á hvað er vel gert í kennslu að mínu mati. Í kjölfar erindi míns á málþinginu fékk ég endalausar fyrirspurnir um sama efni svo ég ákvað að setja inn grein á Appland þar sem ég fjalla sérstaklega um smáforrit sem eru heppileg til þess að efla málþroska barna.
Útikennsla í leikskólum með iPad og/eða iPhone
Samspil 2015
22. mars 2015
PowToon
Hana má sjá hér og gerði bara sýningin mikla lukku.
https://www.powtoon.com/show/cPrvEYhprSE/nsta-starfsar-2015-2016/
Útspil Samspils 2015
Það var virkilega áhugavert að hitta samnemendur sína, allt mjög áhugasamir kennarar. Því miður þá voru ekki nógu margir leikskólakennarar að mínu mati. Ég hef því ákveðið að halda áfram að reyna að hvetja þá til þess að vera með í UT átakinu. Mér skilst að það séu um 250 kennarar skráðir og allt of fáir leikskólakennarar.
Á þessu námskeiði vorum við að læra á eitt og annað áhugavert og skiptast á hugmyndum á notkun ýmissa verkfæra í kennslu.
TitanPad er eitt verkfæri sem hægt er að nota t.d. til þess að halda utan um viðburði. Á námskeiðinu var það notað til þess að halda utan um námskeiðsdaginn. Þarna skrifuðu þátttakendur inn á sniðurgar vefslóðir verkfæra sem mætti nota í skólastarfi og fl.
Padlet er verkfæri sem ég kannast nú við og hef notað áður t.d. á ráðstefnu 3f og í menntabúðum. Á námskeiðsdaginn var þetta vefsvæði notað til þess að halda utan um hópinn. Hér má sjá alla þátttakendur og svo eiga allir að setja þarna inn vísun á bloggsvæðin sín.
Á vefnum ClassTools er að finna ýmislegt skemmtilegt sem gaman verður að prófa í skólastarfi. Við prófuðum að nota spurningarleik eins og notaður er í Útsvari og svo var notast við Stopwatch niðurtalningu í kaffipásunni. Bara gaman að kynnast svona skemmtilegum tólum.
Socrative er vefsvæði þar sem hægt er að búa til spurningarleiki. Ég á eftir að skoða það betur, en ég þekki Kahoot! og hef notað það í leikskólanum með foreldrum, kennurum og börnum. Frábær leikur sem notaður er með snjallverkfærum eins og iPad og snjall símum.
Group Maker tools var kynnt fyrir okkur, en með því er hægt að skipta nemendum í hópa. Getur verið sniðugt að prufa þetta í hópastarfi í leikskólanum.
Svo voru kynnt fyrir okkur nokkrar leiðir til þess að gera dagbækur til þess að halda utan um það sem við erum að fást við á námskeiðinu. Hér eru nokkur:
Sway - https://sway.com/
Weebly - http://www.weebly.com/
Wix - http://www.wix.com/
Wordpress - https://wordpress.com/
Google vefsíða - https://www.google.com/webdesigner/
Samspil 2015
Þetta blogg er orðið gamalt og ég ákvað að hreinsa til og henda út öllum gömlum persónulegum færslum en halda nokkrum sem tengjast upplýsingatækni. Ég byrjaði nefnilega með þetta blogg þegar ég var á námskeiði hjá Salvöru hér í denn þegar ég var í framhaldsnámi í upplýsingatækni í HÍ.
Á námskeiðinu Samspil 2015 erum við hvött til þess að prófa hin og þessi vefumsjónarkerfi og ætla ég að gera það. Ég hef reyndar enn sem komið er nýtt mér öll þau kerfi sem nefnd hafa verið. Ég hef nefnilega oft tekið að mér að útbúa vefi til þess að halda utan um ráðstefnur og þá hef ég nýtt mér það að prófa ný og ókeypis vefumsjónarkerfi. Síðast gerði ég þessa vefsíðu fyrir Faghóp um skapandi leikskólastarf: http://utumgrundir.weebly.com
7. nóvember 2014
Sjálfbærni og vísindi
-
auka áhuga og skilning leikskólabarna á sjálfbærni, í hverju hún
felst og hvernig þau geti átt þátt í eða haft áhrif á að bæta það
umhverfi sem þau búa í.
-
efla forvitni og áhuga á töfraheimi vísindanna og því sem leynist í eiginleikum ýmissa efna og hluta.
- auka hæfni og þekkingu starfsmanna á viðfangsefninu og styrkja þá í starfi sínu með börnunum.
Í síðustu viku byrjuðum við á tilraun með það hvaða efni er lífrænt og hvað er ólífrænt. Elstu börnin létu mismunndi efnivið saman á streng, plast, pappír, ál, ávexti, bæði banana og epli og svo gler. Þessu næst grófu þau allt saman niður í mold og þar eiga hlutirnir að vera þar til í apríl að þau ætla að moka þá upp og skoða hvað efni eru lífræn og hafa þá væntanlega eyðst í moldinni og hvaða efni eru það ekki og eyðast ekki á þessum mánuðum sem líða.
Yngstu börnin í leikskólanum gerðu sambærilega tilraun einnig, en þau létu á spítu bleiu, plastlok, epli, állok og klósettrúllu. Síðan ætla þau að grafa spýtuna aftur upp næsta vor og sjá hvað hefur gerst.
3. nóvember 2014
Bloggað að nýju
This course is as much about exploring and experimenting with the presented mobile apps as much as it is about finding your own apps and sharing those resources with others. It is imperative that you review the syllabus for the course so that you know what is expected of you.
Participants are strongly encouraged to utilize the Open Forum (located in the Discussion area of the course, which can be accessed by clicking "Discussions" in the menu above) to share resources and apps that they have found that may be beneficial to others. There is a tremendous opportunity with this class to share ideas, resources, and experiences with a wide audience. As the course is offered again and again, the content of the course will be revised based on new apps being released and feedback from participants so the material stays fresh. If participants grant permission to Wilkes, a collection of lessons will be posted that everyone could use even after the course is over.
Here is a great overview of what a MOOC is, and I think it would be helpful for you to watch it to get a feel for the difference between an online course and a MOOC. I know it helped me figure out the difference!
Objectives
Upon completion of the course, students will be able to: identify some of ways mobile technologies can be used in the classroom. utilize mobile apps with teachers and students for teaching, collaboration, and assessment understand how mobile apps can be used to address the Common Core Standards. propose suggestions as to how this new technology might be used in their own classrooms.
Watch these video about the transformation of the "backpack" with mobile devices so you can "imagine the possibilities"!
3. júní 2007
A genius
Your General IQ Score of 149 shows how able your mind is in general. Anyone with a General IQ Score this high is considered to be a genius. This score is better than 99.95% of all persons taking this test. All known occupations can be comprehended with a General IQ this high. You should be able to handle any academic challenges.
Endilega prufið að taka þátt, bara gaman að þessu.
22. mars 2007
13. mars 2006
Hreyfimyndagerð
19. desember 2005
Podcasting - talmál á netinu
Ég mátti til með að prufa þetta nýja fyrirbæri. Hægt er að nálgast upptökurnar mínar hér.
13. desember 2005
Borðstofa námsmannsins
Frelsið er yndislegt, ég vil gera það sem ég vil. Svona leit borðstofan út þegar ég kom heim í gær, tíbilcal námsmannastofa. Núna er ég sem sagt komin í jólafrí í skólanum. Enginn skóli fyrr en um miðjan janúar, það verður frábært. Ég ætla ekki aftur að taka svo margar einingar í einu. Það var bara rugl og hættir að vera gaman að læra. Eftir áramót fer ég í skemmtilegan áfanga sem heitir Margmiðlun til náms og kennslu. Þá erum við að læra á ýmis forrit og það finnst mér svo gaman. Í júní ætla ég svo að láta útskrifa mig það verður líka gaman. Ég skálaði við Ásdísi í gærkvöldi, nú er hún búin í skólanum á bara eftir að útskrifast í júní. Það styttist í að við förum til Frakklands, var að segja við krakkana að nú þyrftum við að fara að þvo og svona... Það hefur allt setið á hakanum vegna náms og vinnu. Nú verður breyting þar á. Gaman að lifa.
25. nóvember 2005
Námskeið
Eftir námskeiðið fór ég svo á fund leikskólasérkennara. Þar var m.a. til umfjöllunar tillögur vinnuhóps sem skipaður var á fundi s.l. vor. Gott starf sem nefndin vann og góðar tillögur að úrbótum sem þær leggja fram. Vonandi að þær verði kynntar sem víðast.
Af náminu er það að frétta að ég er að leggja lokahönd á verkefnin á tveimur námskeiðum og byrja að lesa undir próf á einu. Það skal alltaf vera jafnmikið að gera á þessum árstíma í náminu. Annað í lífinu gengur sinn vana gang. Allir eru hraustir og við hér heima farin að telja niður dagana þar til við förum til Frakklands. Það sama gerir Hrafn hinum megin við hafið.
16. nóvember 2005
Staðbundin lota
Flensa hefur annars verið á bænum, við höfum öll veikst af henni, ekki gott. Ágætt samt að vera búin að afgreiða þann pakka, vonandi verðum við þá öll hress þegar við förum í ferðalagið. Ég virðist ætla að vera á faraldsfæti á næsta ári. Fer til Frakklands í desember, London í janúar og Prag í apríl, Spánar í maí-júní og svo líklegast til USA í október.
22. október 2005
Nám og nám
Verkefnin á námskeiðinu Tölvur með fötluðum verða til samhliða vafri á netinu. Við erum að fá aðgang hjá kennaranum að ýmsu áhugaverðu efni. Eins og vanalega "dett ég í það" á netinu. Þannig verður til samsafn af mörgum krækjum sem við erum að skoða. Alveg ótrúlegt hvað það er til mikið af efni á þessum veraldarvef.
Af öðru er allt gott að frétta. Við njótum þess að halda okkur innan dyra í skammdeginu. Kúrum upp í sófa eða sláumst um tölvuna. Það hefur verið gestkvæmt hjá okkur undanfarið og er það fínt. Allt gengur vel hjá Hrafni í Frans, hann er farinn að hlakka til að hitta mömmu í desember. Skrítið hvað fjarlægðin gerir alltaf fjöllin blá. Annars er hann á skypinu alla daga svo við spjöllum að ég held meira núna en þegar hann er heima.





